Opinn fundur um Landsskipulagsstefnu og skipulagsgerð sveitarfélaga
Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 á opnum fundi í Eyvindarstofu á Blönduósi þann 22. janúar næstkomandi, kl. 13-15. Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.
Þá verður bein útsending verður frá kynningu í Reykjavík þann 29. janúar kl. 15-17 og má sjá hana á vef Skipulagsstofnunar. Á fundinum verður tillagan kynnt auk þess sem að fjallað verður sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga svo sem við endurskoðun aðalskipulags.
Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is, en frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015.