Opinn fundur um nýjan vegvísi í ferðaþjónustu
Miðvikudaginn 9. desember verður haldinn opinn kynningarfundur í Eyvindarstofu á Blönduósi um nýjan vegvísi í ferðaþjónustu og hefst hann klukkan 12:00. Á fundinum munu Grímur Sæmundsen, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar og Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, fjalla um áhersluatriði vegvísisins og Stjórnstöðvar ferðamála ásamt því að eiga samtal við fundarmenn.
Fundur þessi var áður auglýstur mánudaginn 16. nóvember en vegna forfalla ráðherra varð að aflýsa honum þann dag. En nú hefur nýr fundardagur verið ákveðinn sem er, eins og áður sagði, miðvikudagurinn 9. desember nk.
Á fundinum verður súpa, salat og brauð í boði fyrir fundargesti. Sjá nánar á www.ferdamalastefna.is.