Opinn fundur um stöðu og málefni sauðfjárbænda

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda og Félag sauðfjárbænda í Skagafirði standa fyrir opnum umræðufundi um stöðu og málefni sauðfjárbænda um þessar mundir. Fundurinn verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi miðvikudaginn 30. ágúst nk. klukkan 20:00.

Framsögumenn á fundinum verða
-        Ágúst Andrésson, formaður Landssamtaka sláturleyfishafa.
-        Oddný Steina Valsdóttir, formaður Landssamtaka sauðfjárbænda.
-        Sigríður Ólafsdóttir, ráðunautur á rekstrarsviði RML

Sveitarstjórnarfólki af svæðinu, fulltrúum SSNV, þingmönnum norðvestur kjördæmis og fleiri ráðamönnum hefur einnig verið boðið á fundinn.

Búnaðarsamband Húnaþings og Stranda og Félag sauðfjárbænda í Skagafirði hvetja alla sauðfjárbændur til að mæta, láta rödd sína heyrast og koma sínum skoðunum á framfæri.

 

Fleiri fréttir