Opna Fiskmarkaðsmótið

Minningarmót um Karl Berndsen verður haldið á Skagaströnd laugardaginn 22. júní nk.

Keppnin fer fram á Háagerðisvelli á Skagaströnd. Keppt verður í karla- og kvennaflokki án forgjafar og punktakeppni með forgjöf, einn flokkur. Nándarverðlaun á par 3 brautum og fyrir annað högg næst holu á braut 4.

Keppnisgjald kr. 3.000.- Unglingar 14 ára og yngri kr. 1.500.-

Mótið er hluti af Norðvesturþrennunni.

Skráning á golf.is og í síma 892 5089 eða 892 3080 fyrir kl. 19:00 á morgun, föstudaginn 21. júní. Skagaströnd.is segir frá þessu.

 

Fleiri fréttir