Opna Fiskmarkaðsmótið 2011
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir
20.06.2011
kl. 09.31
Opna Fiskmarkaðsmótið í golfi var haldið á Háagerðisvelli, Skagaströnd, föstudaginn 17. júní sl. Mótið er fyrsti hluti svokallaðar Norðvesturþrennu golfklúbbanna á Skagaströnd, Blönduósi og Sauðárkróki. Alls tóku 36 keppendur þátt í mótinu. Sterkur austlægur vindur var meðan á keppninni stóð og setti hann sitt mark á árangur keppenda. Úrslit urðu sem hér segir:
- Árný Árnadóttir GSS 93 högg
- Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 93 högg
- Guðrún Ásgerður Jónsdóttir GÓS 95 högg
- Brynjar Bjarkason GÓS 83 högg
- Einar Einarsson GSS 85 högg
- Jón Jóhannsson GÓS 87 högg
Punktakeppni með forgjöf
- Kristján Blöndal Jónsson GÓS 33 punktar
- Einar Einarsson GSS 32 punktar
- Sigríður Elín Þórðardóttir GSS 30 punktar