Opnað fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Kálfshamarsvík. Skagabyggð fékk fyrr á þessu ári styrk til að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk í Kálfshamarsvík. Mynd:northwest.is
Kálfshamarsvík. Skagabyggð fékk fyrr á þessu ári styrk til að bæta aðstöðu fyrir ferðafólk í Kálfshamarsvík. Mynd:northwest.is

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða fyrir árið 2020 en hann veitir styrki til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru á ferðamannastöðum sem eru í eigu eða umsjón sveitarfélaga og einkaaðila allt um land. Einnig styrkir sjóðurinn aðgerðir sem varða öryggi ferðamanna og verndun náttúru landsins svo og verkefni til undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna styrkhæfra verkefna.

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þær reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins og reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða hér á vefnum undir www.ferdamalastofa.is/umsoknir.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun veita umsækjendum leiðbeiningar við undirbúning og gerð umsókna þar til auglýstum umsóknarfresti lýkur.

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Þjónustugátt Ferðamálastofu sem aðgengileg er á www.ferdamalastofa.is/umsoknir og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um umsóknaferlið.

Umsóknarfrestur er til hádegis þriðjudaginn 29. október 2019. Umsóknir sem berast eftir það eru ekki teknar gildar.

Nánari upplýsingar er að finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir