Opnað fyrir umsóknir í Stuðnings-Kríu
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins sem hefur umsjón með mótframlagslánum til nýsköpunarfyrirtækja, hefur opnað fyrir umsóknir um mótframlagslán Stuðnings-Kríu og er umsóknafresturinn til 13. ágúst 2020.
Stuðnings-Kría er tímabundið stuðningsúrræði stjórnvalda til efnilegra sprotafyrirtækja sem vegna breyttra aðstæðna í kjölfar Covid-19 faraldursins þurfa að sækja sér aukna fjármögnun. Í aðgerðum ríkisstjórnarinnar er sérstaklega lögð áhersla á að efla nýsköpun og tryggja rekstrargrundvöll sprota- og nýsköpunarfyrirtækja. Áætlað er að lánin verði greidd út í haust.
Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins mun hafa umsýslu og framkvæmd verkefnisins samkvæmt samkomulagi við nýsköpunarráðherra. Stuðnings-Kría mun úthluta allt að 755 milljónum króna í formi lána til fyrirtækja sem uppfylla þau skilyrði sem sett eru. Mótframlagslán verða í formi skuldabréfa með breytirétti í hlutafé.
Ákvarðanir um veitingu mótframlagslána eru teknar af nefnd sem skipuð er af ráðherra. Meginforsenda mótframlagslána er að umsækjandi hafi tryggt sér fjármögnun einkafjárfesta í formi hlutafjár eða lánveitingar. Stuðnings-Kría mun þá veita sambærilegt lán á sömu kjörum og á sama lánstíma að uppfylltum öðrum skilyrðum.
Á vef Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, nyskopun.is, má finna frekari upplýsingar um mótframlagslánin, skilyrðin sem fyrirtæki þurfa að uppfylla og umsóknarferlið.
Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins: „Með Stuðnings-Kríu stíga stjórnvöld mikilvægt skref í því að styðja við rekstur íslenskra sprota- og nýsköpunarfyrirtækja. Með því að skapa fyrirtækjum og einstaklingum aukið svigrúm til að vinna við nýsköpun er jafnframt lagður farvegur að frekari efnahagslegum framförum til frambúðar. Framlag Stuðnings-Kríu tekur mið af samstarfi opinberra aðila og einkaaðila og mun framlagið samsvara því sem aðrir fjárfestar eða lánveitendur leggja í fyrirtækin.“
Nánari upplýsingar veitir; Huld Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, í síma 8609494.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.