Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir Handverkshátíð 2016
Opnað hefur verið fyrir umsóknir þátttakenda á Handverkshátíð við Hrafnagil sem haldin verður dagana 4. – 7. ágúst næstkomandi. Líkt og undangengni ár geta þátttakendur sótt um sölubás á innisvæði, útisvæði eða í matvælatjaldi. Með umsókn skuldbindur sýnandi sig til að taka þátt í sýningunni alla 4 sýningardagana.
Í ár verður haldin samhliða Handverkshátíðinni Landbúnaðarsýning auk þess sem aukin áhersla verður lögð á marvæli, sér í lagi matvæli úr héraði.
Til að sækja um er bent á heimasvæði Handverkshátíðar sem er að finna í tengli á heimasíðu Eyjafjarðarsveitar, www.esveit.is. Umsóknafrestur er til og með 1. apríl. Niðurstaða mun liggja fyrir þann 2. maí og verður öllum umsóknum svarað.
/Fréttatilkynning