Opnir fundir um sameiningarmál
Undanfarnar vikur hafa ráðgjafar frá fyrirtækinu Ráðrík ehf. fundað með ýmsum félagasamtökum í Austur-Húnavatnssýslu og heimsótt fyrirtæki á svæðinu í því skyni að fá fram viðhorf íbúanna til sameiningar sveitarfélaganna. Í þessari viku verða haldnir opnir fundir í sýslunni þar sem farið verður yfir stöðu sveitarfélaganna og þá málaflokka sem virðast mikilvægastir hjá íbúum. Fundirnir eru haldnir með það að markmiði að allir sem vilja koma að umræðunni hafi til þess möguleika.
Íbúar geta valið hvaða fund þeir kjósa að sækja. Reynt verður að tryggja að sem flestir geti komið sínum viðhorfum á framfæri á fundunum og að góðar umræður geti orðið um framtíðina og möguleika svæðisins.
Fundirnir verða sem hér segir:
Miðvikudaginn 4. apríl Skagabúð kl. 16:00
Miðvikudaginn 4. apríl Félagsheimilinu Blönduósi kl. 20:00
Fimmtudaginn 5. apríl Klausturstofa Þingeyrakirkju kl. 16:00
Fimmtudaginn 5. apríl Fellsborg Skagaströnd kl. 20:00
Föstudaginn 6. apríl Húnavöllum kl. 16:00
Föstudaginn 6. apríl Húnaveri kl. 20:00
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.