Opnun Norðurstrandarleiðar

Við Norðurströndina, Grettislaug. Mynd af Facebooksíðunni Opnun Norðurstrandarleiðar.
Við Norðurströndina, Grettislaug. Mynd af Facebooksíðunni Opnun Norðurstrandarleiðar.

Opnunarhátíð Norðurstrandarleiðar, eða Arctic Coast Way, verður haldin á degi hafsins, laugardaginn 8.júní. Norðurstrandarleið er um 900 kílómetrar og liggur milli Hvammstanga í vestri og Bakkafjarðar í austri. Leiðin liggur um 21 bæ eða þorp meðfram ströndinni og undan landi eru sex eyjar sem auðveldlega er að hægt að komast út í með bát eða ferju. Verkefninu er ætlað að virka sem aðdráttarafl fyrir þá ferðamenn sem vilja ná betri tengslum við náttúruna og menningarlíf svæðisins.

Formleg opnun verður við Hvammstanga og Bakkafjörð klukkan 10:00 þar sem klippt verður á borða og opnuninni fagnað. Í framhaldi af því verður boðið upp á marga skemmtilega og fræðandi viðburði, víðsvegar um svæðið, m.a. í Húnavatnssýslunum.

Til að fagna opnun Norðurstrandaleiðar býður Markaðsstofa Norðurlands upp á kökur og kaffi í safnaðarheimili Hvammstangakirkju frá klukkan 10:30-11:30 laugardaginn 8. júní.

Á Skagaströnd verður farið í fjöruferð með Valtý Sigurðssyni líffræðingi hjá BioPol kl. 10:00.
Klukkan 12:00 verður formleg opnun í Miðfirði á sýningu á vörðum, sem búnar voru til úr rusli á dögunum sem safnað var saman úr fimm fjörum á Norðurlandi vestra. Fjörurnar eru fjörur Borgar- og Garðssands við Sauðárkrók, Sandasand í botni Miðfjarðar og fjörur við Selvíkurtanga við bæina Hafnir og Víkur.

Klukkan 12:30 verður farið í gönguferð um Spákonufellshöfða á Skagaströnd með Ólafi Bernódussyni sem ræðir um Skagaströnd og svarar spurningum um staðinn og Höfðann. Klukkan 17:00 verða sagðar sögur af sjóskrímslum í Spákonuhofi á Skagaströnd og klukkan 22:00 verður haldin púttkeppni í kvöldsólinni fyrir ofan Bjarmanesá Skagaströnd.

Nánari upplýsingar um dagskrána er að finna hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir