Opnun sýningar á Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
24.05.2017
kl. 11.03

„Þar sem firðir og jöklar mætast“. Grænlandsdvöl Rannveigar H. Líndal 1921-1923 verður opnuð 27. maí kl. 14:00. Mynd/Byggðasafn Húnvetninga og Strandamanna
Tilkynning frá Byggðasafni Húnvetninga og Strandamanna
Laugardaginn 27. maí kl. 14:00 verður sýningin „Þar sem firðir og jöklar mætast“. Grænlandsdvöl Rannveigar H. Líndal 1921-1923 opnuð.
Rannveig H. Líndal var merkiskona sem fór ótroðnar slóðir og lifði viðburðaríku lífi. Árið 1921 bauðst henni starf við kennslu á Grænlandi. Þar dvaldi hún í tvö ár og hélt dagbók um dvöl sína á meðan auk þess sem hún skrifaði fjöldamörg bréf heim til Íslands, tók fjölda ljósmynda og teiknaði myndir. Sýningin er byggð á þessum heimildum sem varðveittar eru á Héraðsskjalasafni Vestur-Húnavatnssýslu.
Aðgangur verður ókeypis að safninu og léttar veitingar í boði.