Opnun Þórsstofu – Íshafsleiðin til Kína
Þórsstofa – Íshafsleiðin til Kína verður formlega opnuð í Kvennaskólanum á Blönduósi sunnudaginn 16. október nk.
Þórsstofa er vinnustofa og fundarsalur sem varðveitir skjöl, bækur, muni og myndir sem dr. Þór Jakobsson veðurfræðingur áhafnaði Háskólasetrinu í Kvennaskólanum á Blönduósi, sem starfar í tengslum við Hólaskóla—Háskólanum á Hólum. Vinnustofan mun vera aðgengileg fræðimönnum, nemendum og öllum þeim sem áhuga hafa á náttúru og mannlífi norðurslóða.
Við opnunina mun dr. Þór Jakobsson segja nokkur orð um Þórsstofu og sjóleiðina norður til Kína. Fleiri munu munu taka til máls, m.a. Skúli Skúlason rektor á Hólum, Arnar Þór Sævarsson bæjarstjóri Blönduóss, Catherine Chambers og Bjarni Kristjánsson.
Allir eru velkomnir að vera viðstaddir opnunina sem fer fram kl. 13. Húsið verður opið til kl. 17.