Opnunarhátíð Rannsóknaseturs um sveitastjórnarmál

Föstudaginn 5. apríl næst komandi verður formleg opnun Rannsóknaseturs um sveitarstjórnarmál í Háskóla Íslands á Laugarvatni. Í tilefni dagsins mun Sigurður Ingi Jóhannsson samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra heimsækja rannsóknasetrið ásamt fleiri góðum gestum. Rannsóknasetur um sveitarstjórnarmál er hluti af starfsemi Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands og er það starfrækt með stuðningi frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Rannsóknasetrið er í senn rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun fyrir sveitarstjórnarstigið. Markmið þess er að efla og styðja við rannsóknir á sveitarstjórnarmálum og auka faglega þekkingu kjörinna fulltrúa sveitarfélaganna og starfsmanna í stjórnsýslu þeirra. Verkefnin eru af ýmsum toga og miða þau flest að því að styrkja starfsemi sveitarfélaganna í heild sinni en rannsóknasetrið mun einnig taka að sér sértæk verkefni fyrir sveitarfélögin í formi þjónustuverkefna meðal annars. Rannsóknarstjóri setursins er Eva Marín Hlynsdóttir, dósent í opinberri stjórnsýslu við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, en verkefnisstjóri þess með aðsetur á Laugarvatni er Helga Kristín Sæbjörnsdóttir.

Málstofa um stöðu og áskoranir kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum
Í undanfara opnunarinnar verður haldin málstofa þar sem Colin Copus, emeritus prófessor við De Montfort háskólann í Leicester, mun halda fyrirlestur sem ber heitið: Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn: Í ljósi æ flóknari verkefna, vaxandi áreitis og  aukinna krafna íbúa. Málstofan er haldin í húsnæði Háskóla Íslands á Laugarvatni en hún verður einnig send út á netinu í streymi.  Fyrirlesturinn fer fram á ensku og er aðgangur ókeypis. 
Mælst er til þess að þátttakendur í málstofu og gestir við opnunarhátíð skrái sig til leiks á: www.stjornsyslustofnun.hi.is

Dagskrá:
13.00 – 14.30 Málstofa með Colin Copus; Staða kjörinna fulltrúa í sveitarstjórnum og samspil við embættismenn
15.00 – 17.00 Opnunarhátíð Rannsóknaseturs um sveitarstjórnarmál; Niður úr fílabeinsturninum: Hvað geta rannsóknir gert fyrir íslensk sveitarfélög á 21. öldinni?

Erindi flytja:
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundafjarðarbæjar
Colin Copus, emeritus prófessor í háskólanum Leicester
Eva Marín Hlynsdóttir, rannsóknastjóri setursins
Sigurður Ingi Jóhansson, samgöngu- og sveitastjórnarráðherra
Léttar veitingar og opið fyrir skoðunarferðir um húsið.

Formlegri dagskrá lýkur kl. 17.00

 

Nánari upplýsingar um málstofuna og opnunahátíðina veita Helga Kristín Sæbjörnsdóttir, verkefnisstjóri rannsóknaseturins í síma 525 5314/866-4998  eða í gegnum netfangið hks@hi.is, og  Sjöfn Vilhelmsdóttir, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála í síma 525 5454/ 698-9683 eða í gegnum netfangið sjofn@hi.is 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir