Örlítið öskufall
Íbúar á Sauðárkróki tóku eftir því í morgun að bílar þeirra voru óvenju skítugur. Sumir kenndu um seltu á meðan aðrir töluðu um ösku. Feykir ákvað því að gera tilraun og skellti hvítum disk út fyrir hurð. Fjórum tímum síðar var diskurinn tekinn inn og myndin talar sínu máli. Jú það er öskufall en sem betur fer alveg pínu lítið.