Orsök ærdauðans fundin?
Eins og greint var frá í síðasta tölublaði Feykis hafa rannsóknir á útbreiddum og óvenjumiklum fjárdauða í vetur og vor ekki leitt í ljós hver ástæðan er. Tæplega 5000 kindur létust án þess að viðhlítandi skýring hafi fundist en ýmsar skýringar hafa verið settar fram.
Í vikunni greindi Bændablaðið frá því að verkfræðiprófessor við Háskóla Íslands teldi ærdauðann geta stafað af meltingarsjokki vegna brennisteinsúrfellinga úr Holuhrauni, þar sem regn hefði losað brennistein úr gosmekkinum yfir Norður- og Vesturlandi.
Jónas Elíasson, rannsóknarprófessor í verkfræði við HÍ telur mögulegt að brennisteinsúrfelling geti hafa valdið ærdauðanum. Jónas, sem er félagi í alþjóðlegum samtökum um rannsóknir á gosösku úr lofti, segir að erfiðustu aðstæður fyrir ærnar séu þegar beitilandið er að koma undan snjó og brennisteininn í snjónum verður eftir á grasinu. Til að mæta þeirri hætti hefði þurft að taka sýni úr úrkomu og jarðvegi og ekki hleypa á mengað beitiland fyrr en mengunin væri horfin.
Jónas segir að magnið hafi ekki verið nægjanlegt til að valda eitrun en samt nóg til að setja meltingu úr skorðum og valda næringarskorti og hordauða. Fari næringarefnaupptakan úr skorðum gangi þroski lamba fyrir, sem og framleiðsla mjólkur eftir burð, sem geti dregið ærnar til dauða.