Óska eftir umsjónarmanni dreifnáms á Hvammstanga
Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra á Sauðárkróki óskar eftir að ráða umsjónarmann dreifnáms á Hvammstanga. Umsóknarfrestur er til 14. júní nk.
Samkvæmt auglýsingu sem birt var á heimasíðu FNV felst m.a. í starfinu dagleg umsjón með nemendum og líðan þeirra í námsveri á Hvammstanga, eftirlit með skólasókn, aðstoð við nemendur í kennslustundum, samskipti við kennara FNV, seta í kennslustundum í námsveri og í námslotum á Sauðárkróki, agastjórnun og dagleg umsjón með námsveri og tækjabúnaði námsvers.
„Við leitum að fjölhæfum umsækjanda sem á gott með að umgangast ungt fólk og er tilbúinn til að taka þátt í mótun á fyrirkomulagi dreifnáms í Húnaþingi vestra. Æskilegt er að umsækjandi hafi háskólapróf á uppeldissviði,“ segir í auglýsingu.
Starfshlutfall er 100% og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 14. júní 2012 og umsókn skal senda til skólameistara (ingileif@fnv.is). Umsókn þarf að fylgja afrit af prófskírteini auk yfirlits um fyrri störf, ekki þarf að sækja um á sérstöku umsóknareyðublaði.
Nánari upplýsingar veita:
Ingileif Oddsdóttir – ingileif@fnv.is – 455-8000
Þorkell V. Þorsteinsson – keli@fnv.is – 455-8000