Óska Guðmundi velfarnaðar

Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi samþykkti í gær eftirfarandi ályktun í tilefni af úrsögn Guðmundar Steingrímssonar þingmanns úr Framsóknarflokknum:

 

„Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi (KFNV) þakkar Guðmundi Steingrímssyni fyrir samstarfið og starf hans fyrir Framsóknarflokkinn í kjördæminu og á landsvísu. Stjórnin vill jafnframt óska honum velfarnaðar í störfum sínum í framtíðinni.

Stjórnin ásamt þingmönnum Framsóknarflokksins í kjördæminu mun nú sem áður við vinna að framgangi stefnumála flokksins s.s. í atvinnumálum, skuldavanda einstaklinga og fyrirtækja og velferðarmálum, í Norðvesturkjördæmi sem og á landsvísu.“

Fleiri fréttir