Óskað eftir hugmyndum vegna Húnavöku frá íbúum Blönduósbæjar

Markvert ehf sem er umsjónaraðili Húnavöku 2012, óskar eftir hugmyndum frá bæjarbúum á Blönduósi um dagskrá Húnavökunnar og hvaðeina sem íbúar bæjarins vilja koma á framfæri í tengslum við hátíðina.

Þetta geta verið ábendingar um dagskráratriði, staðsetningar viðburða eða hvað sem er. Á heimasíðu Markvert segir að þetta megi gera með því að senda tölvupóst á Markvert ehf, en netfangið er markvert@markvert.is.

Fleiri fréttir