Óskar eftir umræðu um afleiðingar óveðurs

Jón Bjarnason alþingismaður hefur óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi um afleiðingar óveðursins í upphafi vikunnar. Jón hefur verið í sambandi við fólkið á svæðinu og fylgst náið með ástandinu og vill tryggja að bændur fái þá aðstoð sem þeir þurfa. 

„Hér með er óskað eftir sérstakri umræðu á Alþingi svo fljótt sem verða má um hinar alvarlegu afleiðingar óveðursins á Norður og Norðausturlandi 10. og 11. september sl.og viðbrögð stjórnvalda gagnvart björgunaraðgerðum, tjónabótum og hvernig megi treysta öryggi, viðbúnað og almannavarnir íbúa og atvinnulífs við náttúruhamfarir sem þessar,“ segir í bréfi Jóns Bjarnasonar.

Jafnframt óskar hann eftir að innanríkisráðherra, sem ráðherra almannavarna, verði til að svara fyrir málið af hálfu ríkisstjórnar.

Fleiri fréttir