Óskilahross í Skrapatungurétt

Þrátt fyrir mikinn snjó og vonda færð gekk stóðsmölun á Laxárdal vel um þar síðustu helgi, samkvæmt Húna.is. Eftir helgina kom þó í ljós að tvö óskilahross voru í stóðinu sem voru örmerkt en óskráð. Hrossaeigendur eru beðnir um að skoða sín örmerkingarblöð með það í huga að finna þessi örmerki.

Rauðstjörnóttur hestur 2 v örmerki 352206000076833.
Rauðskjótt hryssa 2 v örmerki 352206000076867.

Upplýsingar í síma 865-2421.

 

Fleiri fréttir