Óskir um framkvæmdir á skólalóðinni
Húni.is segir frá því að á fundi fræðslunefndar Blönduósbæjar þann 20. júní síðastliðinn fór Þórhalla Guðbjartsdóttir, skólastjóri Blönduskóla, yfir óskir skólastjórnenda um framkvæmdir á skólalóðinni en í fjárhagsáætlun Blönduósbæjar er gert ráð fyrir 1,5 milljón króna í framkvæmdir á lóðinni. Hugmyndir eru uppi um að útbúa hjólabrettagarð á lóðinni.
Í máli Þórhöllu kom fram að óskað er eftir að tveimur körfum verði komið fyrir á malbikaða planinu á milli sparkvallar og trappa og útlínur vallar málaðar á malbikið. Óskað er eftir því að svæði sunnan við sparkvöll verði lagað og lagt á það varanlegt malbik ca. 25m x 10m og það svæði tekið frá fyrir hjólabrettagarð.
Fram kom hjá Þórhöllu að hugmyndin að hjólabrettagarði hafi komið fram í vinnu barna á miðstigi skólans í vetur og sé áætlað að gerð verði kostnaðaráætlun fyrir það ásamt uppbyggingu á leiksvæði við Gamla skólann og í framhaldi af því verði tekin ákvörðun um framhaldið við gerð næstu fjárhagsáætlunar. Fram kom að hugmyndir nemenda samræmast fyrri hugmyndum að uppbyggingu skólalóðarinnar.
Auk þess óska skólastjórnendur að fulltrúar nemenda og foreldrar þeirra fái leyfi til að hefja fjársöfnun til tækjakaupa fyrir áætlaðan hjólabrettagarð.
Fræðslunefndin færði til bókar að hún leggi áherslu á að farið verði í þessar framkvæmdir á skólalóðinni.