Ósverk fær verkið

Tilboð vegna jarðvegsskipta við lóð Kvennaskólans á Blönduósi voru opnuð á skrifstofu Blönduósbæjar í dag. Alls buðu fimm aðilar í verkið og var það Ósverk ehf. sem var með lægsta tilboðið, samkvæmt heimildum Húna.is.

Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 2.649.000 en tilboð Ósverks hljóðaði upp á kr. 1.510.550 og því 57% af kostnaðaráætluninni. Samið verður við Ósverk um verkið og munu framkvæmdir hefjast á næstu dögum.

Tilboðin voru eftirfarandi:

  • Sorphreinsun VH ehf. kr. 2.355.978.
  • Vinnuvélar Símonar ehf. kr. 3.998.750.
  • Ósverk ehf. kr. 1.510.550.
  • Júlíus Líndal ehf. kr. 2.223.250.
  • Norðurtak ehf. kr. 2.677.500.

 

Fleiri fréttir