Óþolandi skattlagning á eldsneyti
Á fundi stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem haldinn var þann 12. apríl s.l var m.a rætt um hækkandi eldsneytisverð og áhrif þess á íbúa og fyrirtækjarekstur á landsbyggðinni. Þykir SSNV áhrif in á atvinnustarfsemi og lífskjör íbúa á landsbyggðinni með öllu óþolandi.
Eftirfarandi var fært til bókar.
Hækkun eldsneytisverðs. Umræður urðu um hækkun eldsneytisverðs og neikvæð áhrif þess á landsbyggðina. Í framhaldi var eftirfarandi bókun samþykkt. Stjórn SSNV mótmælir harðlega stefnu stjórnvalda í skattlagningu á eldsneyti. Íþyngjandi áhrif á atvinnustarfsemi og lífskjör íbúa á landsbyggðinni eru orðin með öllu óþolandi. Stjórnin telur aðgerða þörf strax.