Ótrúleg fjölbreytni á opnum dögum
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
11.03.2015
kl. 14.06
Þessa vikuna standa yfir opnir dagar hjá Nemendafélagi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Um er að ræða þrjá daga þar sem hefðbundið skólastarf er brotið upp og nemendum gefinn kostur á að taka þátt í alls konar afþreyingu og fræðslu utan hins hefðbundna ramma.
Meðal þess sem er í boði má nefna golfhermi, kvökmyndahóp, handavinnuhorn, hollustunammigerð, spinning og skokk. Þá verður hægt að heimsækja skotsvæðið, fá kynningu á björgunarsveitinni, spila borðspil og fara á skíði, svo eitthvað sé nefnt. Feykir tekur á móti fjölmiðlahópi á morgun, fimmtudag, og má búast við afrakstri þess í næstu blöðum og hér á vefnum. /KSE