„Ótrúleg upplifun!“
Þórdís Inga Pálsdóttir er ung og efnileg hestakona frá Flugumýri í Skagafirði, dóttir Eyrúnar Önnu Sigurðardóttur og Páls Bjarka Pálssonar. Þórdís Inga sigraði í unglingaflokki á Landsmóti hestamanna 2014 sem haldið var á Hellu í byrjun júlí og fékk í framhaldinu boð um að taka þátt í Norðurlandamóti íslenska hestsins sem fór fram í Herning dagana 30. júlí til 3. ágúst sl.
-Eftir Landsmót var stefnan sett á Íslandmót með Kjarval. Við Kjarval höfum aldrei verið í betra formi saman og því var markmiðið skýrt. Þannig að ég lét Norðurlandamótið fara svolítið fram hjá mér. En svo fékk ég óvænt símtalið þar sem mér var boðin þátttaka og það var bara allt of dýrmætt tækifæri til að sleppa því, segir Þórdís Inga en viðtalið í heild sinni má lesa í Feyki vikunnar.