Óveður á Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi
Á Norðvesturlandi eru flestir vegir greiðfærir þó er hálka eða hálkublettir á nokkrum útvegum. Óveður er á Þverárfjalli og á Siglufjarðarvegi. Hálkublettir og skafrenningur er á Öxnadalsheiði. Suðvestan 18-23 er á Ströndum og Norðurlandi vestra og stöku skúrir eða él. Lægir í dag.
Austan 5-10 og slydda eða snjókoma seint í kvöld. Hiti 0 til 5 stig.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðvestan 3-10 og lítilsháttar væta, en slydda eða snjókoma V-til síðdegis. Vaxandi suðvestanátt um kvöldið. Hiti 0 til 7 stig, mildast austast.
Á fimmtudag:
Suðvestanátt, víða 8-13 m/s. Léttskýjað á A-verðu landinu, annars él. Frost 0 til 5 stig, en frostlaust við S- og A-ströndina.
Á föstudag:
Norðlæg átt og él, en léttskýjað á S-verðu landinu síðdegis. Kólnar í bili.
Á laugardag:
Sunnanátt og fer að snjóa, fyrst S- og V-lands. V-lægari síðdegis, rigning og milt veður.
Á sunnudag og mánudag:
Norðlæg átt, víða él og kólnar talsvert.