Óveður er í kringum Blönduós

Færð á vegum að morgni fimmtudags, 10. mars 2016. Mynd/Vegagerðin.
Færð á vegum að morgni fimmtudags, 10. mars 2016. Mynd/Vegagerðin.

Suðaustan 13-20 og rigning er á Ströndum og Norðurlandi vestra. Hiti 1 til 6 stig. Snýst í suðvestan 10-18 með éljum síðdegis. Hiti kringum frostmark í kvöld. Mun hægari sunnanátt og þurrt að kalla annað kvöld.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er talsvert autt á Norðurlandi vestra, þó eru hálkublettir víða á útvegum. Óveður er í kringum Blönduós. Hálkublettir eru á Vatnsskarði. 

Veðurhorfur á landinu næstu daga 

Á föstudag:

Suðvestan 15-23 m/s og éljagangur, hvassast á Vestfjörðum en úrkomulítið NA-til. Snýst í suðlægari átt og lægir heldur um kvöldið. Hiti um og undir frostmarki. 

Á laugardag:

Suðaustan hvassviðri og rigning, talsverð sunnanlands en hægari austlæg átt og úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti 1 til 10 stig, hlýjast austanlands. Snýst í suðvestan hvassviðri eða storm með éljum undir kvöld og kólnar. 

Á sunnudag:

Sunnan hvassviðri eða stormur með talsverðri rigningu og hlýindum, en áfram þurrt að kalla norðaustantil. Hiti 4 til 10 stig. 

Á mánudag:

Sunnan hvassviðri og rigning sunnan og suðaustanlands en snýst í suðvestanátt með skúrum eða éljum síðdegis, einkum V-til og heldur kólnandi veðri í bili. 

Á þriðjudag og miðvikudag:

Útlit fyrir áframhaldandi fremur milda suðlæga átt og rigningu og súld vestantil en bjartviðri austanlands.

Fleiri fréttir