Óvissuástand vegna snjóflóðahættu
Lýst hefur verið yfir óvissuástandi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og Mið-Norðurlandi. Samkvæmt skilgreiningu á óvissustigi einkennist það af atburðarás sem er hafin og ætla má að geti leitt til þess að öryggi fólks og eða byggðar sé stefnt í hættu. Á þessu stigi hefst samráð milli almannavarna, Veðurstofu Íslands og þeirra stofnana sem málið varðar.
Athuganir, rannsóknir, vöktun og mat er aukið enda veðurspáin ekki hagstæð því á Ströndum og Norðulandi vestra er gert ráð fyrir norðan 10-18 m/s, hvassast á annesjum. Snjókoma, en talsverð snjókoma A-til um tíma í kvöld og nótt. Frost 1 til 6 stig.
Þá má búast við slæmu ferðaveðri um landið norðanvert í dag og á morgun.