Páskahretið bankar upp á?
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
18.04.2011
kl. 08.03
Hún er ekki skemmtileg spáin næsta sólarhringinn en spáin er eftirfarandi; „Hæg breytileg átt og él, en norðaustan 8-13 m/s og snjókoma eftir hádegi. Snýst í norðvestan 10-15 með éljum seint í kvöld. Suðvestan 8-13 og slydduél á morgun. Hiti 0 til 5 stig.“ Við þurfum því eitthvað að bíða eftir vorinu, sólinni og hlýjunni.