Perlað af Krafti í Hörpu
Sunnudaginn, 4. febrúar, hvetur Kraftur landsmenn alla til að mæta í Hörpuna milli 13 og 17 og perla armbönd til styrktar félaginu. Kraftur stefnir á Íslandsmet í fjölda manns við armbandagerð.
Síðustu vikur hefur Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, staðið fyrir árveknis- og fjáröflunarátaki og er perluviðburðurinn lokahnykkur í átakinu - Krabbamein kemur öllum við | Lífið er núna. Armböndin sem verða perluð eru seld á viðburðinum en mörg armbönd eru nú þegar seld.
Ester Amíra Ægisdóttir, 11 ára, mun láta hárið fjúka á viðburðinum til styrktar krabbameinssjúkum. En báðar ömmur hennar hafa greinst með krabbamein og ákvað hún að láta klippa hárið sitt til hárkollugerða fyrir krabbameinssjúka og safna áheitum til styrktar Krafti. Upphaflegt markmið hennar var að safna yfir 100.000 krónum en hún er komin vel yfir þá upphæð.
Til að halda uppi stemningu og stuði á meðan á armbandagerðinni stendur munu frábærir listamenn stíga á stokk þ.e. Valdimar, Amabadama, Úlfur Úlfur og DJ Sóley. Komdu og njóttu þess að vera með vinum og fjölskyldu á sunnudagseftirmiðdegi og perla til styrktar ungu krabbameinsgreindu fólki og aðstandendum.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.
Ókeypis er í bílastæði Hörpu meðan á viðburðinum stendur í boði 115 security.
Vertu perla og hjálpumst að við að slá Íslandsmet og styrkja í leiðinni ungt krabbameinsgreint fólk og aðstandendur.
/Fréttatilkynning
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.