Píratar auglýsa eftir frambjóðendum

Á Húnahorninu kemur fram að Píratar kalli nú eftir framboðum fyrir næstu Alþingiskosningar í öllum kjördæmum nema í Norðausturkjördæmi þar sem prófkjöri er lokið og listi hefur verið samþykktur.

Þann 16. júní opnuðu Píratar í Norðvesturkjördæmi fyrir framboð í prófkjöri og verður því lokað þann 7. ágúst næstkomandi. Rafræn kosning hefst hjá Pírötum 8. Ágúst og stendur til 14. ágúst. Hafi fólk hug á að kjósa í prófkjörinu verður það að skrá sig í Pírata en síðustu forvöð til þess eru föstudaginn 15. júlí. Bent er á í tilkynningu frá Pírötum að þeir aðilar sem tilkynna framboð sitt eftir 22. júlí, fái hugsanlega minni kynningu en ella. Áhugasömum er bent á að senda tilkynningu á nvkjordaemi@piratar.is.

Framboðstilkynning þarf að innihalda eftirfarandi upplýsingar:

 

  • Nafn
  • Kennitala
  • Lögheimili
  • Símanúmer
  • Hagsmunaskráning (stjórnarseta, fjárhagsleg tengsl, annað sem skiptir máli)
  • Aðrar upplýsingar sem ætla má að máli skipti

Fleiri fréttir