Píratar í heimsókn á Feyki

Hildur Sif Thorarensen sem skipar efsta sæti Pírata í Norðvesturkjördæmi nýtti síðustu helgi  til að kíkja á ættingja og vini í Skagafirðinum og safna meðmælendum um leið fyrir listann sinn. Að hennar sögn hefur gengið vel að fá undirskriftir og Skagfirðingar mjög jákvæðir og verið forvitnir um stefnumálin.

Hildur Sif rekur ættir sínar í Skagafjörðinn en amma hennar Tryggvina Ingibjörg Steinsdóttir er fædd og uppalin á Hrauni á Skaga. Hildur Sif leit við á skrifstofu Feykis í gær ásamt Bjarna Rúnari Einarssyni sem skipar 3. sæti Pírata í Reykjavík norður. Þau eru bjartsýn á komandi kosningar enda er flokkurinn kominn yfir 5% þröskuldinn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Mældist fylgi Pírata með 5,6% og næðu 4 mönnum inn á þing væri kosið nú.

Fleiri fréttir