Píratar í málþóf?

Meirihluti Atvinnuveganefndar ákvað fyrr í dag að taka frumvarp um lækkun veiðigjalds úr nefndinni og bíður þess að vera tekið til annarrar umræðu  í dag eða á morgun. Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata segir að Píratar munu þæfa málið eins og þeir þurfi til að skapa svigrúm fyrir forseta Íslands að koma heim frá Þýskalandi og taka við málskotsréttinum úr höndum stjórnarliða sem hafa hann meðan forsetinn er erlendis.

Í morgun birti Jón Þór opið bréf til forseta Íslands þar sem hann spyr hvenær von sé á honum til landsins svo hann geti neitað að skrifa undir lög um lækkun á veiðigjöldum en yfir 34.000 Íslendingar hafa skorað á Ólaf Ragnar Grímsson forseta landsins að undirrita ekki lögin.

„Ef þú hyggst ekki fresta utanlandsferðum þar til þingið hafi afgreitt umrædda lagabreytingu þá bið ég vinsamlegast um upplýsingar um hvenær þú munt án efa dvelja á Íslandi frá 1. til 15. júlí,“ spyr Jón Þór Ólafsson þingmaður Pírata.

Fleiri fréttir