Plastbátasmíðin hafin við FNV

Nám í plastbátasmíði hófst við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sl. föstudag og eru alls þrjátíu og einn nemandi skráður í námið, sem byggt er upp á fjórum námslotum á önn sem hver um sig spannar frá 2,5 dögum upp í fimm daga. Námið samsvarar 19 eininga námi á framhaldsskólastigi og nær yfir tvær annir.

Þeir nemendur sem hafa a.m.k. 12 mánaða reynslu af plastbátasmíði geta að námi loknu sótt um viðurkenningu sem plastbátasmiðir til Siglingastofnunar, en námið er haldið í samvinnu við stofnunina og er liður í verkefni sem stutt er af Leonardo hluta Menntaáætlunar  Evrópusambandsins og kallast PPE eða Plastic Processing Education.

Fleiri fréttir