Plastiðn í FNV
Áfram er unnið við undirbúning þess að koma á námi í plast- og trefjaiðnum við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki en verkefnið nýtur stuðnings menntaáætlunar Evrópusambandsins (Leonardo). Fulltrúar frá FNV, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Sveitarfélaginu Skagafirði eru nú staddir í Hadsten í Danmörku á öðrum samráðsfundi verkefnisins.
Að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar verkefnastjóra í atvinnumálum hjá Svf. Skagafirði er um tveggja ára verkefni að ræða þar sem samstarfsskólar í Finnlandi og Danmörku miðla þekkingu og reynslu sinni í kennslu þessarar iðngreinar við uppbyggingu á náminu hér á landi. Námið verður þróað og aðlagað fyrir íslenskar aðstæður í samráði við starfandi fyrirtæki í plast- og trefjasmíði á Íslandi. Stefnt er að því að fá námið samþykkt sem fullgilda iðngrein og hefja það eigi síðar en á næsta ári.