Pot-Luck á Kaffi Bjarmanes í kvöld
Nes listamiðstöð býður í svokallað „potluck“ í Kaffi Bjarmanesi í kvöld, föstudaginn 12. apríl, kl. 18:30. Þar gefst gullið tækifæri til þess að hitta þá listamenn sem dvelja á Skagaströnd um þessar stundir. „Komdu með matardisk til að deila og njóttu notalegrar kvöldverðar með okkur á Kaffi Bjarmanes,“ segir í fréttatilkynningu frá Nes listamiðstöð.
Potluckið er að venju haldið í húsakynnum listamiðstöðvarinnar en verður ekki haldið þar að þessu sinni. Ástæðan fyrir því er að í Kaffi Bjarmanes er tímabundið safn sem skapar varanlega heimild um daglega siði tengdum mat og minningum – sýnishorn af sögu staðarins, segir í tilkynningu.
„Þú ert beðin(n) um að velja þér eftirlætishlut eða minningu sem tengist mat. Komdu svo með það á Upplifunarsafnið. Við viljum safna þínum fróðleik og búa til sögu sem heldur áfram að vaxa og breytast í tímans rás og við viljum gjarnan að sem flestir heimamenn leggi sitt af mörkum og taki þátt.
Hvernig tek ég þátt? Það er einfalt. Komdu með hlutinn/minninguna í kjallara... Kaffi Bjarmaness á tímabilinu 11.-15. apríl. Opnunartímarnir eru: fimmtudag og föstudag, 11.-12. apríl, kl. 17:00-20:00, laugardag og sunnudag, 13. og 14. apríl, kl. 13:00-17:00. og mánudaginn, 15. apríl, kl. 17:00-20:00. Þú lýsir hlutnum og/eða deilir minningunni og hluturinn er ljósmyndaður. Eftir það ferðu með hlutinn heim þar sem hann heldur vonandi áfram að rifja upp góðar minningar eða skapa nýjar.
Mundu að þetta getur verið nánast hvað sem er sem hefur þýðingu fyrir þig:
• fjársjóður eða drasl
• eitthvað úr eldhúsinu
• uppskrift eða matreiðslubók
• ljósmynd
• eða frásögn sem tengist mat
Hvað gerist svo? Listamaðurinn og kokkurinn Andrew Rewald, sem dvalið hefur í Nes listamiðstöð í þrjá mánuði, mun standa fyrir viðburði sem hann kallar Upplifunareldhús, fyrir áhrif frá Upplifunarsafninu, í lok apríl. Hann mun elda mat sem vísar til þess hlutar eða minningar sem þú komst með. Svo endilega líttu við á Upplifunarsafninu í kjallara Bjarmaness, 11.-15. apríl og leggðu þitt af mörkum til fortíðar-, nútíðar- og framtíðar- matarminninga á Skagaströnd,“ segir loks í tilkynningunni.