Pot-Luck Dinner annað kvöld í Nesi listamiðstöð - uppfært

Listamenn í Nesi Listamiðstöð á Skagaströnd bjóða fólki að koma í vinnustofur sínar nk. sunnudag klukkan 18:30 og taka þátt í Pot-Luck Dinner (ekki föstudag eins og áður var sagt).  Þá koma allir með eitthvað smáræði af mat og setja á hlaðborð en hver sér um sig með matarvín, segir í tilkynningu frá listamiðstöðinni. Allir eru hvattir til að mæta og eiga góða stund í góðum félagsskap að Fjörubraut 8.

Þann 28. mars nk. kl. 16:00-18:00 verða listamenn með opnar vinnustofur sínar þar sem hægt er að forvitnast um hvað verið er að fást við í Nesi.

Tólf listamenn dveljast í listamiðstöðinni í mars en þeir eru:

Margaret Bowes         Canada           www.margaretbowes.com

Anna Kodama            USA    www.annakodama.com

Andrew Rewald         Australia         http://www.andrewrewald.com/

Lidia Malynowskyj    Brazil     www.flickr.com/lidiamaly

Devlin Shea    Sweden / USA           www.devlinshea.com

Scott Miles     Australia         www.scottmiles.org

Katelyn Clark             Canada           www.katelynclark.com

Pam Posey      USA    www.pamposey.com

Monsieur Plume + Stéphanie Letaconoux     France             http://monsieurplume.com

Marlaina Read            Australia         www.marlainaread.com

Tarvi Laamann           Estonia            www.laamann.ee

Fleiri fréttir