Potluck í Nes á fimmtudag
Nes listamiðstöð býður í svokallað „potluck“ fimmtudagur 21 janúar, kl. 18:30-20:30. Þar gefst gullið tækifæri til þess að hitta þá listamenn sem dvelja á Skagaströnd í janúar, sjá listsköpun þeirra og hvernig umhverfið hefur áhrif á verk þeirra.
Potluck eða Pálínuboð er skilgreint sem samkoma þar sem gestirnir koma með mat og leggja til á sameiginlegt hlaðborð. „Komið og deilið máltíð með listamönnunum okkar. Allir velkomnir!“ segir í fréttatilkynningu.
Listamennirnir sem dvelja nú við listamiðstöðina að Fjörubraut 8, Skagaströnd eru frá Ástralíu, Bandaríkjunu, Suður-Kóreu, Danmörku, Englandi, Japan og Kúbu.