Potluck í Nes listamiðstöð

Nes Listamiðstöð býður þeim, sem hafa áhuga, í „potluck“ miðvikudaginn 7. mars kl. 18:30. „Þar gefst gullið tækifæri til þess að hitta þá listamenn sem að dvelja á Skagaströnd í mars mánuði, sjá listsköpun þeirra og hvernig umhverfi okkar hefur áhrif á verk þeirra,“ segir í fréttatilkynningu frá Nes listamiðstöð.

Í hverjum mánuði er haldin veisla þar sem listamenn og gestir koma saman og slá upp hlaðborði og eru allir boðnir velkomnir. „Vinsamlegast taktu með þér rétt á hlaðborðið,“ segir jafnframt í fréttatilkynningunni en hver matreiðir einn rétt og tekur með sér og svo eiga allir skemmtilega kvöldstund saman. Fjölskyldur eru hjartanlega velkomnar. 

 

Fleiri fréttir