Potluck í Nes listamiðstöð
Nes Listamiðstöð á Skagaströnd mun halda „potluck“, eða pálínuboð, þriðjudaginn 8. maí kl. 19. Nú hafa nýir listamenn bæst í hópinn á Nes listamiðstöð og gefst því gullið tækifæri til þess að hitta þá.
Í hverjum mánuði er haldin veisla þar sem listamenn og gestir koma saman og slá upp hlaðborði og eru allir boðnir velkomnir. „Vinsamlegast taktu með þér rétt á hlaðborðið,“ segir í fréttatilkynningu en hver matreiðir einn rétt og tekur með sér og svo eiga allir skemmtilega kvöldstund saman. Fjölskyldur eru hjartanlega velkomnar.
Þeir listamenn sem dvelja við listamiðstöðina eru:
- Alexander Clinthorne- BNA (clinthornecompositions.blogspot.com)
- Kimberlie Wong – BNA (kimiewong.blogspot.com)
- Theresa Northway – BNA
- Ulgen Semerci – Tyrklandi (www.ulgensemerci.com)
- Katharina Kamph – Þýskalandi (www.kamph.net)
- Verena Faisst – Þýskalandi (verenafaisst.de)
- Polly Stanton – Ástralía (pollystanton.com)
- Liz Layton - BNA (lizlayton.tumblr.com)
- Christian Castañeda Vásquez – Mexíkó
- Léa Donnan - Ástralía
- Rossella Piccinno – Ítalía