Prjónakaffi í Textílsetrinu
Prjónakaffi verður haldið í Textílsetrinu á Blönduósi nk. fimmtudagskvöld kl. 20:00. Þá ætla tveir erlendir listamenn og þrír textílnemendur í Textílsetrinu kynna hvað þær eru að vinna með. „Hvetjum alla sem áhuga hafa á spennandi hannyrðum/handverki að koma, sjá og taka prjónana sína með,“ segir á heimasíðu Húnavatnshrepps.
Listamennirnir eru frá Kanada annars vegar og Hollandi hinsvegar. Nemendurnir eru frá textílskóla í Kaupmannahöfn og munu kynna skólann sinn og verkefni. „Tungumál engin fyrirstaða þar sem frásögnin verður þýdd á íslensku jafnharðan,“ segir á heimasíðunni.