Prjónakeppni lokið

Nú er hinni stórskemmtilegu prjónakeppni milli nemenda unglingadeildar Blönduskóla og starfsmanna lokið. Keppt var um að prjóna sem lengstan trefil sem vantaði fyrir árshátíðarleikritið. Lauk keppninni með sigri nemenda. Prjónuðu þeir um það bil 20 sentímetrum lengra en starfsmennirnir en trefillinn endaði í rétt tæpum 13 metrum. Frá þessu er sagt á vef Blönduskóla.

Eitthvað var um starfsmenn væru settir í bann frá prjónunum þar sem þeir voru aðeins of öflugir við prjónaskapinn og eins sást til nemenda með fleiri prjóna á lofti en þeirra sem úthlutað var í byrjun...

Starfsmenn þökkuðu nemendum kærlega fyrir skemmtilega og drengilega keppni og óskuðu þeim jafnframt til hamingju með frábæran árangur.

Eitt er víst að trefillinn góði kemur til með að nýtast vel í leikritinu IRIS sem sýnt verður á árshátíðinni þann 25. febrúar næstkomandi.

/Húni.is

Fleiri fréttir