Prjónakvöld í Kvennaskólanum

Prjónakvöld verður í Kvennaskólanum á Blönduósi í kvöld, fimmtudagskvöldið 16. janúar kl. 20:00. Á vef Húnahornsins kemur fram að í Listamiðstöð Textílsetursins eru þrír nemendur frá dönskum textílskóla og munu þær kynna skólann sinn. Einnig er listamaður og prófessor frá Kanada á staðnum og mun hún kynna listaverkin sín sem hún er að vinna að.

Næstu prjónakvöld verða 13. febrúar og 13. mars nk.

Fleiri fréttir