Quinzia Fulmore til Tindastóls
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska framherjann Quinzia Fulmore um að leika með liðinu á komandi tímabili í Bónus deildinni. Hún er 23 ára gömul og kemur frá Greensboro í Norður-Karólínu, er 190 sm á hæð og spilar stöðu framherja/miðherja en styrkleikar hennar eru inni í teignum. Hún á að baki 112 leiki í bandaríska háskólaboltanum.
Í tilkynningu frá körfuknattleiksdeild Tindastóls segir að Quinzia komi með styrk, reynslu og metnað inn í leikmannahópinn og verði spennandi viðbót við liðið en þegar eru þrír erlendir leikmenn frá Argentínu komnir á Krókinn.
Þegar Feykir fletti upp í gervigreindinni og spurðist fyrir um styrklega Quinzia er fyrst tekið fram að fráköst séu hennar mesti stykleiki og þá sér í lagi varnarfráköst. Hún sé öflug í að vinna sér stöðu og líkamlega sterk. Minnst er á að hún hafi varla tekið 3ja stiga skot í háskólaboltanum en hún er með góða skotnýtingu nærri körfunni. Hæð og styrkur nýtist henni vel þegar hún verst stærri leikmönnum og þegar hún sækir að körfunni. Hún getur komið sér djúpt inn í teig, haldið stöðu og skorað með einföldum pósthreyfingum. Nú er bara að sjá hvort gervigreindin sé með sitt á hreinu.
Quinzia er boðin hjartanlega velkomna í Tindastólsfjölskylduna!
