Rabb-a-böbbin komin á Feyki.is

Hér í gamla daga þegar Skagafjörður.com var og hét þá var einn af ómissandi þáttum vefsins Rabb-a-babbið, þáttur þar sem svarendum gafst möguleiki á að sína á sér hina hliðina eða jafnvel sparihliðina. Nú er hægt að nálgast þetta efni hér á Feyki.is.

Rabb-a-böbbin voru orðin allnokkur og nú má finna 83 stykki undir þessum lið en hægt er að nálgast þetta efni á gráa borðanum undir fagurgræna borðanum hér efst á síðunni og einnig í kassa neðarlega til hægri á forsíðunni.

Rabb-a-böbbin birtust reyndar af og til í Feyki og sum eingöngu þar en þessi liður hefur setið hjá síðustu 2-3 árin. Hugmyndin er taka upp þráðinn að safna fleiri Röbbum í sarpinn og það nýjasta birtist einmitt hér á Feyki.is í morgun þegar Elfa Hrönn Friðriksdóttir frá Höfða svaraði nokkrum léttum spurningum.

Við vonum að lesendur hafi gaman af að endurnýja kynnin og taki vel á móti nýjum.

Fleiri fréttir