Ráðherra heimsótti SAH afurðir

Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra heimsótti SAH Afurðir á dögunmu. Farið var yfir málefni tengd landbúnaði á landsvísu, rædd aðkoma Matvælastofnunar að framleiðslu sláturleyfishafa og fleira bar á góma í heimsókninni.

Á heimasíðu SAH afurða kemur fram að þessi óformlegi fundur hafi reynst gagnlegur fyrir báða aðila. Ráðherra fékk leiðsögn í gegnum húsnæði SAH Afurða og kynningu á starfsemi félagsins. Þó hann sé flestum sláturhúsum á landinu kunnugur, frá störfum sínum sem dýralæknir, hafði hann ekki komið í húsnæði SAH afurða áður, en þar á bæ telja menn milliliðalausar tengingar við ráðamenn í landbúnaðarmálum mikilvægar og nauðsynlegar.

Fleiri fréttir