Ráðið í stöðu forstöðumanns hjá Þekkingarsetrinu á Blönduósi

Þekkingarsetrið á Blönduósi í gamla Kvennaskólanum. Mynd: FE
Þekkingarsetrið á Blönduósi í gamla Kvennaskólanum. Mynd: FE

Á heimasíðu Þekkingarsetursins á Blönduósi segir frá því að Elsa Arnardóttir hafi verið ráðin forstöðumaður setursins frá og með 1. maí 2018. Var hún valin úr hópi fimm umsækjenda um stöðuna sem auglýst var í byrjun ársins. 

Á vef Þekkingarsetursins segir ennfremur: „Elsa er með B.A. próf í mannfræði og heimspeki frá Háskóla Íslands, diplóma í textíl við Myndlistaskólann í Reykjavík og er að ljúka meistaranám við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Hún starfaði sem forstöðumaður Fjölmenningarsetursins á Ísafirði í þrettán ár, en á þessum tíma þróaðist starfsemin frá því að vera tímabundið verkefni með einum starfsmanni í opinbera stofnun á föstum fjárlögum. Sem forstöðumaður Fjölmenningarsetursins var það hlutverk Elsu að bera ábyrgð á daglegum rekstri og starfssemi stofnunarinnar auk þess að vinna að stefnumótun, áætlanargerð og þróun samstarfsverkefna m.a. með sveitarfélögum og fræðslustofnunum. Það mun einnig verða hluti af starfi hennar hjá Þekkingarsetrinu.“

Undanfarin ár hafa Textílsetur Íslands og Þekkingarsetrið unnið að semeiginlegri stefnumótunarvinnu og kemur ráðning Elsu í kjölfar hennar. Katharina Schneider, sem áður gegndi stöðu framkvæmdastjóra setursins, mun starfa árfam hjá setrinu og hafa meðal annars umsjón með verkefnaþróun, kynningum- og upplýsingamálum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir