Ráðstefna um stuttrófukyn sauðfjár
Fjórða ráðstefnan um stuttrófukyn sauðfjár við Norður Atlandshaf verður haldin að Blönduósi 4.-8. sept. nk. Margir spennandi fyrirlestrar á dagskránni og fyrirlesarar koma víðs vegar að.
Fyrirlestrar verða fyrir hádegi en heimsóknir og ferðir eftir hádegi. Í fréttatilkynningu frá aðstandendum ráðstefnunnar kemur fram að um er að ræða spennandi ráðstefnu fyrir þá sem hafa áhuga á fé, afurðum þess og umhverfi. Eru áhugasamir hvattir til að skrá sig á heimasíðu Textílseturs, www.textilsetur.com, sem allra fyrst. Hægt er að velja einn og einn dag og jafnvel hálfa daga.
Dagskráin er eftirfarandi:
Fimmtudagur 4. september:
Leiðsögn Ólafur Dýrmundsson og Emma Eyþórsdóttir
12:00 Lagt af stað frá Bændahöllinni
12:45-15:00 Ístex
15:45-20:00 Ullarselið Hvanneyri - kvöldverður
20:00-22:00 Blönduós
Föstudagur 5.september:
Leiðsögn Ólafur Dýrmundsson
9:00-10:00 Handverksfólk setur upp sýningu/ Skráning á ráðstefnuna
10:00-10:15 Jóhanna - velkomin/Arnar Þór Sævarson, bæjarstjóri setur ráðstefnuna
10:15-10:45 Karin Flatøj Svarstad - upphaf/markmið ráðstefnunnar - Noregur
10:45-11:15 Emma Eyþórsdóttir- sauðfjárrækt - ull - kjötmat- Ísland
11:15-11:35 Philip Sponenberg - litir sauðfjár - USA
11:35-11:55 Umræður
12:00-13:00 Hádegishlé
13:00 Brottför frá Félagsheimilinu á Blönduósi
13:30-14:30 Undirfellsrétt - (Vatnsdalshringurinn)
14:30-16:00 Sjá fjárreksturinn koma niður af Haukagilsheiði
16:00-16:45 Þingeyrakirkja
17:00-18:00 Kvenfélagskaffi á Húnavöllum
18:00 - 20:00 (Tekið á móti safni í Auðkúlurétt)
Laugardagur 6. september:
9:00-9:20 Makkak Heilmann Nielsen - sauðfjárrækt og nýting ullar á Grænlandi
9:20-9:40 Hildur Hákonardóttir - Hvað var svo gert við ullina? Brot úr sögu kljásteinavefstaðarins.- Ísland
9:40-10:00 Elísabet Johnston - Hvað var svo gert við ullina? Brot úr sögu kljásteinavefstaðarins. - Hjaltland
10:00-10:20 Marta Kløve - Hvað var svo gert við ullina? Brot úr sögu kljásteinavefstaðarins. - Noregur
10:20-10:40 Umræður
12:00-13:00 Hádegisverður - fiskréttur
10:40-14:00 Unnið að hugmyndum að rannsóknarefni
14:00-15:30 SAH
15:30-18:00 Heimilisiðnaðarsafnið /Refillinn /Textílsetrið
20:00-23:00 Hátíðarkvöldverður
22:30-01:00 (Réttarball í Húnaveri)
Sunnudagur 7.september:
9:00-9:30 Björn Paturson - sauðfjárrækt - ull - ullarvinnsla í Færeyjum
9:30-9:50 Jenny Shephard - Manx Loaghten sauðfé á Mön
9:50-10:10 Heidi Greb - filt - Þýskaland
10:10-10:30 Scott Sinclare - sauðfjárbúskapur - St. Ronaldsay
10:30-10:50 Umræður
10:50-11:30 Niðurstöður úr rannsóknarvinnu
11:30:12:00 Slit á ráðstefnu /Jóh-Ólafur
12:00-12:50Skagafjörður - komið við í Skarðarétt
13:50-14:00 Hádegisverður
14:00-15:30 Gestastofa Sútarans - 500
15:30-16:00 Kakalaskáli
18:00-19:30 Víkingablót í Kakalaskála - Kvennakórinn Sóldísir - Gásahópurinn
19:30-20:15 Blönduós
Plan A og B fer eftir færð og veðri
Mánudagur 8.september:
Plan A: Kjölur - Stóridalur - Blönduvirkjun - Hveravellir - Gullfoss - Þingborg
08:00 Lagt af suður yfir Kjöl frá Blönduósi
08:30-09:30 Blönduvirkjun, kynning og morgunkaffi
09:30-11:30 Keyrt á Hveravelli
11:30-12:30 Hveravellir (nestisstopp)
12:30-14:30 Keyrt að Gullfossi
14:30-15:30 Gullfoss og Geysir
18:00-19:00 Þingborg
19:30-20:30 Kvöldverður
21:00-22:00 Reykjavík
Plan B: Kaldidalur - Þingvellir - Þingborg
08:00 Lagt af stað suður yfir Kjöl frá Blönduósi, yfir Kaldadal
Kaldidalur (nestisstopp)
12:00-14:00 Þingvellir
15:00-17:30 Þingborg
17:30-18:30 Lagt af stað til Reykjavíkur