Ragnar í framboð til formennsku í SUF

Ragnar S. Rögnvaldsson 27 ára Skagstrendingur sem starfað hefur sem formaður Ungra Framsóknarmanna í Skagafirði síðastliðin tvö ár hefur tilkynnt um framboð sitt til formennsku Sambands ungra Framsóknarmanna. -Nú er kominn sá tími að ég tel best fyrir framtíð Sambands ungra framsóknarmanna að nýju blóði verði hleypt í starfið. Ég hef því ákveðið að gefa kost á mér til formennsku í SUF, segir Ragnar.

-Ég tel að undanfarin ár hafi starf SUF verið langt frá því að vera eins öflugt og það þarf að vera. Þessu þarf að breyta. Undanfarið hefur SUF ekki verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni, en ég tel að skoðanir ungra framsóknarmanna hafi aldrei átt meiri samleið með þjóðinni en einmitt nú. SUF þarf að vera sterkur vettvangur sem ungt fólk vill taka þátt í, segir Ragnar og bætir við að til þess þurfi bæði að styrkja innra starf sambandsins og stórauka starfið út á við. -Eitt aðalmarkmið mitt er að ungir framsóknarmenn geti sameinast og verið stoltir af að taka þátt í öflugu starfi SUF.

Fleiri fréttir