Rallýið fer af stað um næstu helgi

Rallýáhugafólk er farið að setja sig í stellingar en fyrsta umferð í Íslandsmótinu í rallý 2016 verður ekin á Suðurnesjum dagana 3. og 4. júní næstkomandi. Að venju er það Akstursíþróttafélag Suðurnesja sem sér um þessa fyrstu keppni en hún hefst með akstri á sérleið um Nikkel klukkan 18:10 á föstudeginum. 

Síðasta leið föstudagsins er hefðbundin leið um Keflavíkurhöfn en hún hefur notið mikilla vinsælda meðal áhorfenda. Eknar verða hefðbundnar leiðir báða dagana en keppninni lýkur þó á nýrri leið á Kvartmílubrautinni klukkan 12:00 á laugardag. 

Alls er fjórtán áhafnir skráðar til leiks, þar af fimm af Suðurnesjum. Má sjá bæði reynslubolta í bland við nýliða ásamt því að örlitlar breytingar hafa orðið á áhöfnum frá því á síðasta ári. Þar er helst að nefna að Skagfirðingurinn og Íslandsmeistarinn Baldur Haraldsson hefur ákveðið að taka sér frí um sinn en aðstoðarökumaður hans, Aðalsteinn Símonarson mun í sumar aka með Sigurði Braga Guðmundssyni. Siggi Bragi er reynslubolti mikill, hefur verið viðriðinn rallýakstur frá árinu 1986. Verður spennandi að fylgjast með þeim félögum en ljóst er að bæði fyrrum Íslandsmeistarar Henning Ólafsson ásamt Árna Gunnlaugssyni og Daníel Sigurðsson ásamt Ástu Sigurðardóttur ætla sér stóra hluti í sumar. 

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir